top of page

SJÁLFVIRK TÍMATAKA ER Í 10 KM, HÁLFMARAÞONI OG MARAÞONI. NOTAÐUR VERÐUR TÍMATÖKUBÚNAÐUR FRÁ MYLAPS SEM SAMANSTENDUR AF MOTTUM Í RÁSMARKI SEM HLAUPARAR FARA YFIR Í BYRJUN OG ENDA HLAUPS OG FLÖGUM.
 

Flöguna verður hver og einn hlaupari að festa við reimarnar á öðrum skónum sínum eða á ökklaband. Engin flaga = enginn tími.

Flagan geymir númer sem tengt er viðkomandi hlaupara og tímatakan hefst þegar farið er yfir motturnar í byrjun hlaups og lýkur þegar hlaupari fer yfir hana aftur í marki. Flögutími gefur því nákvæman persónulegan árangur hlaupara, óháð því hve aftarlega í hópnum hann var við ræsingu. Einnig er tekinn tími frá því að startskot ríður af sem kallast byssutími. Það er sá tími sem gildir til úrslita í hlaupinu eins og alþjóðlegar reglur um lögleg götuhlaup segja til um. 

MARAÞON, HÁLFMARAÞON OG 10 KM

Tímataka hvers og eins þátttakanda er framkvæmd með flögu. Festa þarf flöguna með skóreim við annan skó þátttakandans. Hafi þátttakandi enga flögu festa í skóinn er ekki hægt að mæla tímann hans. Til þess að reimin losni ekki er gott að binda tvöfaldan hnút.
 

FLÖGUNNI SKILAÐ

Allir þátttakendur fá flöguna á leigu, sem er innifalin í þátttökugjaldinu. Að hlaupi loknu þarf hver og einn þátttakandi að losa flöguna af skónum og afhenda hana starfsmönnum hlaupsins sem staðsettir verða inni í Jarðböðunum við Mývatn. Flagan er virk í þetta eina hlaup. Hægt er að virkja flöguna aftur og þess vegna er verðgildi í henni fyrir hlauphaldara. ÞÁTTTAKENDUR ERU BEÐNIR AÐ VIRÐA SKILAÁKVÆÐI vegna umhverfissjónarmiða og kostnaðar og stuðla þannig að sanngjörnu þátttökugjaldi til framtíðar. Flagan ásamt hlaupanúmeri hefur verið skráð á nafn þátttakanda og gildir eingöngu fyrir þann einstakling. Frávik frá því ógildir tímatöku. Skili viðkomandi ekki flögunni til starfsmanna getur hann fengið bakreikning.

bottom of page