top of page
Mývatnshringurinn.png
Laxárhringurinn.png

MÝVATNSHRINGURINN - Almenningsmót! 

 

Mývatnsmaraþoni og Bikarmóti í Hjólreiðum laugardaginn 25. maí 2024!

Búast má við aukinni umferð hjólreiðamanna við Mývatn laugardaginn 25. maí 2024. Mývatnshringurinn 2024 verður ræstur frá Jarðböðunum við Mývatn kl. 9:55 og mun töluverður fjöldi hjólreiðafólks hjóla umhverfis Mývatn, en á sama tíma fer líka fram Bikarmót í hjólreiðum í samvinnu við HFA. Keppnisleiðin endar í Jarðböðunum við Mývatn og gert er ráð fyrir því að keppninni ljúki um kl 13:00.

Mývatnshringurinn er fyrsta hjólreiðakeppnin við Mývatn en hjólað er á malbiki umhverfis vatnið eða 42.2km. Keppt er í almenningsflokki og keppnin hentar mjög vel öllum áhugasömum um götuhjólreiðar og við hvetjum eindregið keppnisfólk, fjölskyldur og vinahópa til að hjóla saman þessa stórbrotnu leið.

Mývatnshringurinn er hugsaður sem hjólreiðakeppni fyrir alla í stórbrotnu en samt þægilegu umhverfi. Allir þáttakendur fá skráðan tíma. Innifalið í skráningu er einnig aðgangur í Jarðböðin við Mývatn, hamborgari frá Hótel Laxá og bjór frá Mývatn Öl! Vinningar fyrir fyrstu 3. sætin.

Vegalengd: 42.2 km.

Dagsetning: 25. maí 2024

Ræsing: 09:55

Skráningargjald: 10.900kr fyrir fullorðna og 5.900kr fyrir börn (12-15 ára)

Ath. það má taka þátt á rafmagnshjóli en þau hjól teljast ekki til úrslita.

Hér er Mývatnshringurinn á Strava

Bikarmót í hjólreiðum!

Í samstarfi við Hólreiðafélag Akureyrar er Mývatnshringurinn orðin hluti af Bikarmóti Hjólreiðasambands Íslands! Í boði eru fjölbreyttir flokkar og keppnin hentar því öllum áhugasömum um götuhjólreiðar. Við hvetjum keppnisfólk jafnt sem fjölskyldur og vinahópa til að hjóla saman þessa stórbrotnu leið. 

Ræst frá Jarðböðunum við Mývatn 25. maí! Hjólaðar eru mismunandi leiðir umhverfis Mývatn og endað í Jarðböðunum aftur. Gert er ráð fyrir því að keppni ljúki kl.13:00 (tímataka er þó í gangi til kl. 15:30).

Þátttakendur fá skráðan tíma. Innifalið í skráningu eru drykkir og hamborgari við endamarkið og aðgangur í Jarðböðin við Mývatn!


Fyrsta ræsing: 09:30

Skráning er ekki hafin!

Skráning er ekki hafin!

Tímar og leiðir í Bikarmóti:

 

Ræs kl 9:30 -  A-flokkur KK (138.53km)  https://www.strava.com/routes/2971775264869490240 

 

Ræs kl 9:34 - B-flokkur KK (98.18km) https://www.strava.com/routes/2971192963003621022

Junior/U-19 KK (17-18 ÁRA) (98.18km) https://www.strava.com/routes/2971192963003621022

 

Ræs kl 9:38 - A-flokkur KVK (98.18km) https://www.strava.com/routes/2971192963003621022

 

Ræs kl 9:42 - B-flokkur KVK (78.47km)  https://www.strava.com/routes/2971780040002496064 

Junior/U-19 KVK (17-18 ÁRA) (78.47km)https://www.strava.com/routes/2971780040002496064
 

Ræs kl 9:46 - Almenningur/C-flokkur KK (42.42km) https://www.strava.com/routes/2971778873033877150

U-17 KK (15-16 ÁRA) (42.42km) https://www.strava.com/routes/2971778873033877150
 

Ræs kl 9:50 Almenningur/C-flokkur KVK (42.42km) https://www.strava.com/routes/2971778873033877150

U-17 KVK (15-16 ÁRA) (42.42km) https://www.strava.com/routes/2971778873033877150

bottom of page